Fotbolti.net
21.07.20 - 23:07
Birna Rún Erlendsdóttir

Jakob: Við verðum bara að gera betur

Auglýsing
Jakob Leó Bjarnason, þjálfari Hauka.

Jakob Leó Bjarnason, þjálfari Hauka.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Bara hundfúll.“ sagði Jakob Leó Bjarnason, þjálfari Hauka þegar hann var spurður um fyrstu viðbrögð eftir 1-0 tap fyrir Gróttu í Lengjudeild kvenna í kvöld.
„Mér fannst við daufar í fyrri hálfleik, ekki nægilega góðar. Vorum hins vegar með boltann heilt yfir bara örugglega áttatíu prósent í þessum leik. Grótta opnaði okkur einu sinni, fékk eitt færi í leiknum og skoruðu og gerðu það mjög vel.“



„Við fáum svona tvö þokkaleg, ekki dauðafæri kanski en þokkalega sénsa og Tinna varði vel þarna í tvígang ef ekki þrígang.“




Haukar voru mestmegnis með boltann í leiknum og héldu honum nánast allan seinni hálfleikinn. 



„Við vorum að reyna þrýsta þeim aftar og pressa á þær. Mér fannst það takast svona þokkalega á ákveðnum köflum í seinni hálfleik.“ 



Haukar eiga næst leik á móti Tindastól en liðið er í 2.sæti í deildinni. Það má því búast við hörkuleik.



„Við þurfum bara að vera aðeins markvísari í okkar aðgerðum sóknarlega og klára hlaupin okkar betur inn á teiginn og hafa meiri sjálfstraust og trú á því að við getum skorað mörk.“



„Markmiðin okkar eru ekkert breytt en hins vegar þurfum við að átta okkur á stöðunni, hún er ekkert voðarlega góð eftir leikinn í kvöld. Við stefnum hátt með þetta lið og nú er bara spurning hvað leikmannahópurinn gerir.“



Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.



 
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.