Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 21. júlí 2021 20:35
Ívan Guðjón Baldursson
Æfingaleikir: Auðvelt fyrir West Ham, Aston Villa og Tottenham
Mynd: Getty Images
Þrjú úrvalsdeildarfélög spiluðu æfingaleiki í dag og lentu ekki í erfiðleikum gegn andstæðingum úr neðri deildum.

West Ham lagði Reading að velli á meðan Aston Villa setti fjögur gegn Walsall.

Ollie Watkins gerði tvö þar og skoraði Aaron Ramsey fjórða mark leiksins. Þetta er ekki hinn velski Ramsey sem er samningsbundinn Liverpool, heldur efnilegur táningur úr akademíu Villa.

Emiliano Buendía átti stórleik fyrir Villa og gaf tvær magnaðar stoðsendingar í sigrinum.

Að lokum skoruðu Son Heung-min, Lucas Moura og Dele Alli í sigri Tottenham gegn Colchester.

Reading 0 - 3 West Ham
0-1 Issa Diop ('37)
0-2 Conor Coventry ('56)
0-3 Ben Johnson ('78)

Walsall 0 - 4 Aston Villa
0-1 Ollie Watkins ('27)
0-2 Ollie Watkins ('38)
0-3 J. Philogene-Bidace ('51)
0-4 Aaron Ramsey ('58)

Colchester 0 - 3 Tottenham
0-1 Son Heung-min ('11)
0-2 Lucas Moura ('14)
0-3 Dele Alli ('38)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner