21.08.05 - 13:35
Magnús Már Einarsson
Marlet og Alex til Wolfsburg (Staðfest)

Marlet með skot í leik með Marseille þar sem hann var í láni á sínum tíma.

Wolfsburg hefur fengið framherjann Steve Marlet frá Fulham og varnarmanninn Alex frá Benfica. Hinn 31 árs Marlet hefur gert eins árs samning við Wolfsburg með möguleika á öðru ári en hann kom frítt til Wolfsburg.
Alex kemur á 1,8 milljónir evra frá Benfica samkvæmt þýskum fjölmiðlum og hefur hann gert fjögurra ára samning við Wolfsburg sem er í níunda sæti eftir tvær umferðir í Bundesligunni en liðið hefur gert jafntefli í báðum leikjum sínum til þessa.
Thomas Strunz hjá Wolfsburg sagði þegar að leikmennirnir voru kynntir: ,,Steve Marlet er mjög þekktur alþjóðlegur leikmaður, leikmaður sem er hraður og fjölhæfur. Alex er minna þekktur þrátt fyrir að vera landsliðsmaður en hann er tæknilega góður eins og allir portúgalskir leikmenn og hann hefur réttu eiginleikana fyrir varnarmenn hægra megin."