21.08.07 - 16:17
Hörður Snævar Jónsson
Stefan Wessels til Everton (Staðfest)

Everton fá liðstyrk.

Mynd: Getty Images

Everton fá liðstyrk.

Mynd: Getty Images
Everton hafi gengið frá kaupum á þýska markmanninum, Stefan Wessels. Hann kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við FC Cologne rann út. Hann skrifar undir eins ár samning við Everton.
Stefan Wessels er 28 ár gamall og hefur verið að æfa með Everton undanfarið. Hann mun vera varamarkvörður en Tim Howard er aðalmarkvörður liðsins.
,,Ég er spenntur fyrir því að vera í Englandi," sagði Stefan Wessels við heimasíðu Everton.
,,Þetta er í fyrsta skipti sem ég spila fyrir lið utan Þýskalands en enska úrvaldsdeildin er spennandi deild og mig hlakkar til að vera hjá Everton," sagði Stefan Wessels að lokum.

Heimild: Sky