Vilhjálmur Sigmunds: Erum að gefa okkar strákum tækifæri
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Það er voða erfitt að segja nokkuð eftir svona leik. Við reynum samt að halda jákvæðu lofti. Menn voru að reyna fram á við allan tímann,\" sagði Vilhjálmur Sigmundsson þjálfari Völsungs við Fótbolta.net eftir 6-1 tap gegn Selfyssingum í dag.
Völsungur missti lykilmenn í júlí en liðið situr á botni deildarinnar með einungis tvö stig.
,,Við erum fyrst og fremst að reyna að hugsa um að gefa okkar strákum tækifæri. Við erum að keyra þetta eingöngu á heimamönnum fyrir utan Odrobena sem er með okkur ennþá.\"
,,Við munum áfram gefa þessum strákum tækifæri, það eru þeir sem koma til með að taka við keflinu.\"
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.