21.08.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Frá Keflavík til Króatíu (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halid Alghoul og Keflavík sömdu um starfslok í byrjun mánaðar.
Halid er 23 ára sóknarmaður, fæddur í Króatíu og spilar með U23 landsliði Palestínu.
Hann er búinn að finna sér nýtt félag og er genginn í raðir NK Dubrava Zagreb sem spilar í næstefstu deild Króatíu.

TENGT EFNI
Tveir kveðja Keflavík (Staðfest)
Halid kom við sögu í níu leikjum með Keflavík í Bestu deildinni og lagði upp eitt mark.
Eldri bróðir Halid, Muhamed Alghoul, er leikmaður Keflavíkur og hefur verið í stóru hlutverki í liðinu. Hann sneri aftur á völlinn í síðustu umferð eftir nefbrot.