Fotbolti.net
21.08.26 - 16:46
Ívan Guðjón Baldursson

Kominn til Sunderland eftir nánari athugun (Staðfest)

Kominn til Sunderland eftir nánari athugun (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Sunderland er búið að staðfesta félagaskipti Dayann Méthalie úr röðum Toulouse fyrir rúmar 30 milljónir evra.
Féll á læknisskoðun hjá Sunderland
TENGT EFNI

Féll á læknisskoðun hjá Sunderland

Méthalie er efnilegur vinstri bakvörður sem leikur fyrir U21 landslið Frakklands. Hann spilaði 27 deildarleiki í Frakklandi á síðustu leiktíð og mun berjast við Reinildo Mandava um byrjunarliðssæti.

Hann gerir fimm ára samning og er fenginn til að breikka hóp Sunderland sem glímir við erfiðar áskoranir í ensku úrvalsdeildinni og Evrópudeildinni í vetur.

Méthalie átti að ganga til liðs við Sunderland fyrr í vikunni en hann féll á hluta af læknisskoðuninni. Læknateymi Sunderland fann vandamál í baki sem krafðist nánari athugunar.

Bakvörðurinn flaug því aftur til Frakklands þar sem hann gekkst undir frekari rannsóknir og er læknateymi Sunderland sátt með niðurstöðurnar sem fengust.

Kominn til Sunderland eftir nánari athugun (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.