Fotbolti.net
21.08.26 - 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Man City reynir að fá Brassa inn fyrir Brassa

Man City reynir að fá Brassa inn fyrir Brassa
Canon

Mynd: EPA

Manchester City er að selja kantmanninn Brasilíumanninn Savinho til Tottenham.

Í enskum miðlum er fjallað um að City sé að leita að manni í stað Savinho og horfir til Allan sem er kantmaður Palmeiras í Brasilíu.
Allan er örvfættur Brasilíumaður sem spilar yfirleitt á hægri kantinum eins og Savinho.

Palmeiras vill ekki selja Allan á þessum tímapunkti þar sem tímabilið í Brasilíu endar í desember og liðið er í baráttu um titla.

Liðið er á toppi brasilísku deildarinnar og er enn í brasilíska bikarnum og suðuramerísku Meistaradeildinni, Copa Libertadores.

Allan er með riftunarákvæði í samningi sínum sem nemur 100 milljónum evra, og er samningsbundinn Palmeiras til 2029.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.