Fotbolti.net
20.08.26 - 23:06
Brynjar Ingi Erluson

Rúnar Alex fær mikið lof fyrir frammistöðuna

Rúnar Alex Rúnarsson

Rúnar Alex Rúnarsson

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Rúnar Alex Rúnarsson var besti maður FCK sem gerði markalaust jafntefli við Inter Turku í fyrri leik liðanna í umspili Sambandsdeildarinnar í kvöld, en hann fær mikið lof fyrir frammistöðu sína hjá danska miðlinum Tipsbladet.
Rúnar Alex hélt hreinu í endurkomu Viktors Bjarka
TENGT EFNI

Rúnar Alex hélt hreinu í endurkomu Viktors Bjarka

Rúnar Alex hefur ekki fengið mörg tækifæri hjá FCK og var um tíma algjörlega utan myndarinnar.

Undir lok 2024 sagði Jacob Neestrup, þáverandi þjálfari liðsins, að markvörðurinn væri ekki inni í áætlunum sínum. Rúnari tókst þó að vinna sig aftur inn í hópinn.

Hann stóð á milli stanganna í æfingaleikjum FCK í sumar og lék sinn þriðja keppnisleik á tímabilinu í kvöld. Rúnar átti stóran þátt í því að liðið fer með hagstæð úrslit inn í síðari leikinn sem fer fram í Danmörku í næstu viku.

„Þetta var enginn sérstakur leikur hjá FCK en stuðningsmenn félagsins geta þakkað einum manni fyrir úrslitin, Rúnari Alex Rúnarssyni. Hann hefur ekki fengið mörg tækifæri í markinu og ég á erfitt með að skilja hvers vegna.“

„Íslenski markvörðurinn átti stórkostlegan leik og varði meðal annars tvö dauðafæri í fyrri hálfleik.“

„Eins og þið vitið hefur Diant Ramaj samið við félagið og því mun Rúnar líklega ekki spila marga leiki til viðbótar áður en samningur hans rennur út eftir ár.“

„Honum tókst þó að auglýsa sig vel í þessum leik og frammistaðan ætti að vekja áhuga annarra félaga,“
sagði Emil Bellaiche, blaðamaður Tipsbladet.

FCK hefur fengið Ramaj aftur á láni frá Borussia Dortmund og er fimm milljóna evra kaupákvæði í samningnum. Honum er ætlað að vera aðalmarkvörður liðsins en Rúnar virðist ekki ætla að gefa sætið eftir baráttulaust.
Diant Ramaj er kominn aftur til FCK á láni

Diant Ramaj er kominn aftur til FCK á láni

Canon

Mynd: Borussia Dortmund

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.