21.08.26 - 09:58
Elvar Geir Magnússon
UEFA í viðræðum við Concacaf um sameiginlega Þjóðadeild

Áhugaverð ný Þjóðadeild í umræðunni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: EPA

Áhugaverð ný Þjóðadeild í umræðunni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Hvernig hljómar það að Jamaíka komi til Íslands til að spila í Þjóðadeildinni á Laugardalsvelli?
Guardian greinir frá því UEFA, fótboltasamband Evrópu, sé í viðræðum við Concacaf, fótboltasamband Norður- og Mið-Ameríku ásamt Karíbahafinu, um að öll 96 aðildarlönd þeirra keppi í sameiginlegri Þjóðadeild.

Ef hugmyndirnar ná fram að ganga gæti keppni í þessari nýju Þjóðadeild mögulega hafist 2028, eftir Evrópumótið. Það er þó tekið fram að viðræðurnar séu á byrjunarstigi.
Hugmyndin gengur út á að fyrirkomulagið yrði í samræmi við núverandi Þjóðadeild UEFA og myndi enda á fjögurra liða úrslitakeppni um meistaratitilinn. Núverandi Þjóðadeild Evrópu myndi þá leggjast af.
Í A-deild Þjóðadeildarinnar myndu sterkustu landslið þessara sambanda keppa sín á milli. Spánn, Frakkland, England og Þýskaland myndu keppa við þjóðir á borð við Mexíkó, Bandaríkin og Kanada.
Samkvæmt frétt Guardian yrði stór hluti tekna Þjóðadeildarinnar sameinaður sem myndi skapa verulegar aukatekjur fyrir Ísland og aðrar smærri þjóðir. Talið er að það yrði gríðarlegt aðdráttarafl í Norður-Ameríku og Kanada að fá stór landslið frá Evrópu í keppnisleiki. Einnig yrði þetta mikil lyftistöng fyrir Mexíkó en fótboltasamband þjóðarinnar hefur opinberlega lýst yfir óánægju með fjárhagslegar takmarkanir sem fylgja því að spila innan Concacaf.
Guardian segir þá að asíska fótboltasambandið hafi lýst yfir áhuga á að ganga til liðs við alþjóðlega Þjóðadeild í framtíðinni svo þessi keppni gæti mögulega stækkað verulega með tímanum.