21.08.26 - 10:29
Elvar Geir Magnússon
Gísli Gotti verður frá í fjóra til fimm mánuði - „Var náttúrulega miður mín“

Gísli Gottskálk á fjóra A-landsleiki á ferilskránni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hann meiddist daginn eftir að hafa verið kynntur hjá St. Pauli.

Mynd: St. Pauli

Miðjumaðurinn Gísli Gottskálk Þórðarson varð fyrir alvarlegum vöðvameiðslum á læri, á æfingu daginn eftir að hann hafði verið kynntur sem nýr leikmaður þýska B-deildarliðsins St. Pauli.
„Ótrúlegt að þetta hafi gerst á æfingu, daginn fyrir fyrsta leik minn með liðinu. Maður er enn að reyna höndla þetta á einhvern hátt," segir Gísli í í viðtali við Vísi en þar kemur fram að hann verði frá í fjóra til fimm mánuði.
„Ógeðslega svekkjandi að lenda í þessu. Þetta eru heldur ekki einhver lítil meiðsli. Þetta er alvöru verkefni þessi meiðsli, aðgerð og allt sem því fylgir. Þetta er högg en maður þarf bara að taka því og halda áfram."

TENGT EFNI
Slæmar fréttir frá Þýskalandi - Gísli Gotti meiddist illa og gengst undir aðgerð
Gísli fór til St. Pauli á láni frá Lech Poznan en lánssamningurinn inniheldur kaupákvæði. Þessi 21 árs gamli miðjumaður hefur verið verulega óheppinn með meiðsli og hefur hann verið mikið frá síðan hann fór út til Póllands frá Víkingi fyrir um einu og hálfu ári síðan.
„Ég var náttúrulega miður mín yfir þessu. Að vera kominn í nýtt lið og geta ekki lagt mitt af mörkum strax. Ég bara fór beint inn á skrifstofu og átti góð samtöl við mennina sem ráða hér. Ég fann það strax samdægurs og við vissum hver staðan væri að það var aldrei neitt annað í huga hjá þeim en að standa hundrað prósent við bakið á mér," segir Gísli í viðtalinu við Vísi en hann gengst í gegnum endurhæfingarferlið í Hamborg.

Heimild: Vísir