Fotbolti.net
21.08.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Subway

England um helgina - Biðin er loksins á enda

Meistararnir taka á móti nýliðum Coventry í fyrsta leik tímabilsins

Meistararnir taka á móti nýliðum Coventry í fyrsta leik tímabilsins

Canon

Mynd: EPA

Stundin er runnin upp. Enska úrvalsdeildin fer aftur af stað eftir gott sumarfrí og eru það meistararnir í Arsenal sem hefja leik gegn nýliðum Coventry í kvöld.
Arsenal varð Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár í vor og fær tækifæri til að hefja titilvörnina með stæl í kvöld.

Frank Lampard mætir með nýliða Coventry á Emirates-leikvanginn en flautað verður til leiks klukkan 19:00.

Fimm leikir eru á dagskrá á morgun. Nýliðar Hull City taka á móti Manchester United klukkan 11:30 í fyrsta leik dagsins.

Þrír leikir hefjast klukkan 14:00. Ipswich Town fær Sunderland í heimsókn, Nottingham Forest mætir Leeds og Everton tekur á móti Crystal Palace.

Brentford og Tottenham eigast síðan við í Lundúnaslag klukkan 16:30.

Þrír leikir eru á sunnudag. Aston Villa heimsækir Brighton klukkan 13:00 og á sama tíma mætir Manchester City liði Bournemouth.

Helginni lýkur síðan með stórleik Newcastle og Liverpool á St. James' Park klukkan 15:30.

Föstudagur:
19:00 Arsenal - Coventry

Laugardagur:
11:30 Hull City - Man Utd
14:00 Everton - Crystal Palace
14:00 Ipswich Town - Sunderland
14:00 Nott. Forest - Leeds
16:30 Brentford - Tottenham

Sunnudagur:
13:00 Brighton - Aston Villa
13:00 Man City - Bournemouth
15:30 Newcastle - Liverpool

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.