21.08.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Penninn á lofti hjá Leedsurum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Bandaríski vængmaðurinn Brenden Aaronson er þriðji leikmaðurinn í vikunni sem framlengir samning sinn enska úrvalsdeildarfélagið Leeds United.
Aaronson er 25 ára gamall og átti eitt ár eftir af samningi sínum. Bandaríkjamaðurinn hefur nú skrifað undir nýjan þriggja ára samning sem gildir til sumarsins 2029.
Bandaríski landsliðsmaðurinn lék stórt hlutverk þegar Leeds vann sér aftur sæti í ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði fjögur mörk og lagði upp önnur fimm á síðustu leiktíð.
Joe Rodon og Jayden Bogle hafa einnig skrifað undir nýja samninga við félagið á síðustu dögum.
Góðar fréttir fyrir Leeds sem hefur leik í ensku úrvalsdeildinni gegn Nottingham Forest á morgun.

2??0??2??9?? ???? ????????????????
— Leeds United (@LUFC) August 20, 2026
Brenden Aaronson has put pen-to-paper on a new three-year contract with the club pic.twitter.com/VpsnRt4dIn