21.08.26 - 09:59
Kári Snorrason
Vinir Ingvars hlaupa til góðs
„Hlaupum fyrir Ingvar, því hann myndi hlaupa fyrir okkur“

Hörður Árnason í treyju sem hópurinn hleypur í.

Mynd: Vinir Ingvars

Pálmi Rafn er meðal þeirra sem hlaupa til styrktar Ingvars.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hægt er að heita á hópinn neðst í fréttinni.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Vinir Ingvars Jónssonar, markvarðar Víkings Reykjavíkur, ætla að láta gott af sér leiða í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka og hlaupa til styrktar Ingvari og fjölskyldu hans
Ingvar greindist fyrr á árinu með illkynja krabbamein og hefur síðan þurft að taka sér hlé frá knattspyrnu. Hann hefur um árabil verið einn af bestu markvörðum íslensks fótbolta og átt farsælan feril með Víkingi, Stjörnunni og úti í atvinnumennsku.

TENGT EFNI
Þjálfarateymi Víkings ætlar að hlaupa fyrir Ingvar
Vinir hans hafa nú sameinast undir nafninu Vinir Ingvars og ætla að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu til að sýna honum og fjölskyldu hans stuðning í verki.
Á hlaupastyrkssíðu hópsins kemur fram að markmiðið sé að létta undir með fjölskyldunni á þessum erfiðu tímum.
Söfnunin hefur þegar fengið góðar undirtektir. Samkvæmt upplýsingum á hlaupastyrkssíðu Vina Ingvars hefur hópurinn safnað rúmlega einni milljón króna nú þegar.
Þar koma saman hlauparar sem taka þátt í mismunandi vegalengdum, meðal annars 10 kílómetra hlaupi, hálfmaraþoni og skemmtiskokki.
Ingvar hefur verið lykilmaður í liði Víkinga síðan hann gekk til liðs við þá árið 2020 og varð Íslandsmeistari með liðinu 2021, 2023 og 2025 auk þess að vinna Mjólkurbikarinn þrisvar. Þá vann hann Íslandsmeistaratitilinn með Stjörnunni 2014 og hefur hann leikið átta A-landsleiki fyrir Íslands hönd.
Fleiri Víkingar taka þátt í hlaupinu. Þjálfarateymi meistaraflokks karla hefur stofnað hlaupahóp til styrktar Ingvari og fjölskyldu hans og hyggst hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu.
Þá munu fyrrum liðsfélagar hans Halldór Orri Björnsson, Hörður Árnason, Pálmi Rafn Pálmason og Baldur Sigurðsson hlaupa ásamt fleirum.
Söfnun Vina Ingvars er opin öllum og hægt er að heita á hópinn í gegnum hlaupastyrkssíðu Reykjavíkurmaraþonsins.
Smelltu hér til að heita á hópinn