20.08.26 - 23:04
Brynjar Ingi Erluson
Savinho á leið til Tottenham fyrir rúmar 75 milljónir punda

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tottenham hefur náð munnlegu samkomulagi við Manchester City um brasilíska vængmanninn Savinho. Það er Fabrizio Romano sem segir frá þessu á X.
Félögin hafa lengi átt í viðræðum um Savinho og náðu loks samkomulagi í kvöld.
Tottenham greiðir rúmar 75 milljónir punda fyrir Brasilíumanninn, sem hefur fengið leyfi til að ferðast til Lundúna og gangast undir læknisskoðun.
Savinho er 24 ára gamall og kom til Manchester City frá Troyes fyrir tveimur árum. Hann hefur skorað sjö mörk í 84 leikjum á tveimur tímabilum hjá félaginu.
Fabrizio Romano segir Tottenham einnig halda áfram viðræðum við City um egypska sóknarmanninn Omar Marmoush.
Tottenham vill bæta alls þremur sóknarmönnum við hópinn áður en glugginn lokar. Cody Gakpo hjá Liverpool er þriðja nafnið sem hefur verið sterklega orðað við félagið.

?????? BREAKING: Tottenham reach verbal agreement with Manchester City to sign Savinho, here we go!
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 20, 2026
Club to club verbal agreement in place tonight with Sávio set to travel for medical at #THFC.
Fee will be over £75m, details to follow.
Separate talks for Omar Marmoush continue. pic.twitter.com/QlbwCrXdUC