Fotbolti.net
Spáin fyrir enska - 2. sæti

21.08.26

Spáin fyrir enska - 2. sæti

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Það er komið að því, enska úrvalsdeildin fer af stað í kvöld. Núna er komið að því að opinbera það hvernig efstu tvö sætin líta út í spá Fótbolta.net fyrir komandi keppnistímabil. Í öðru sæti er Manchester City.
Manchester City gengur inn í nýtt tímabil með risastórt skarð á hliðarlínunni. Í fyrsta sinn í áratug er Pep Guardiola ekki við stjórnvölinn og því er óhætt að segja að nýr kafli sé hafinn hjá félaginu. Á tíu árum vann Guardiola 20 titla og skildi eftir sig arfleifð sem verður nánast ómögulegt að toppa. Ekki aðeins vegna árangursins heldur einnig vegna þess hvernig lið hans spiluðu fótbolta.

Enzo Maresca ætti þó að vera eins vel undirbúinn og hægt er fyrir verkefnið. Ítalinn vann í tvígang með Guardiola sem hluti af þjálfarateymi City og þekkir því hugmyndafræði félagsins af eigin raun. Hann var meira að segja talinn hafa átt þátt í nokkrum af taktískum breytingum Guardiola, þar á meðal þegar John Stones færðist inn á miðjuna á leið City að þrennunni tímabilið 2022/23.

Það áhugaverða við City er að framtíðin er ekki síður spennandi en nútíðin. Nico O'Reilly, Abdukodir Khusanov og Rayan Cherki eru allir 21 eða 22 ára og Elliot Anderson, sem kom fyrir 116 milljónir punda, er aðeins 23 ára. Reynsla Bernardo Silva, John Stones Rodri vegur hins vegar þungt og Maresca þarf að finna leið til að fylla þau skörð.

Það segir sitt um ótrúlega háan mælikvarða Guardiola að City hafi unnið tvo bikartitla á síðasta tímabili en samt hafi það verið upplifað sem vonbrigði. Meistaradeildin rann úr greipum þeirra og Arsenal tók við enska meistaratitlinum. Nú er boltinn hjá Maresca.
Spáin fyrir enska - 2. sæti

Mynd: EPA

Enski boltinn - Lífið eftir Guardiola
TENGT EFNI

Enski boltinn - Lífið eftir Guardiola



Stjórinn: Enzo Maresca kom fyrst til Englands árið 1998 sem táningur hjá West Bromwich Albion og talaði þá vart stakt orð í ensku. Tæpum þremur áratugum síðar hefur hann unnið titla sem stjóri með bæði Leicester og Chelsea og er nú kominn í stærsta verkefni ferilsins. Það verður engin auðveld leið að því að fylla skarð Guardiola, en Maresca hefur nú tækifæri til að skrifa sinn eigin kafla í sögu Manchester City.

Leikmannaglugginn: City gerði risastór kaup þegar félagið landaði Elliot Anderson frá Nottingham Forest, en á sama tíma eru Rodri og aðrir reynslumiklir leikmenn horfnir á braut. Hvernig verður þeirra skarð fyllt?

Komnir:
Elliot Anderson frá Nottingham Forest - 116 milljónir punda
Mathys Detourbet frá Troyes - 21,6 milljónir punda
Jeremy Monga frá Leicester - 12,5 milljónir punda
Pierce Charles frá Sheffield Wednesday - 3 milljónir punda
Gerónimo Rulli frá Marseille - 1,7 milljónir punda
Spáin fyrir enska - 2. sæti

Mynd: EPA

Farnir:
Tijjani Reijnders til Al-Qadsiah - 52 milljónir punda
Rodri til Barcelona - 51,3 milljónir punda
James Trafford til Leeds - 40 milljónir punda
Nathan Aké til Fenerbahce - 7 milljónir punda
Reigan Heskey til Köln - 2 milljónir punda
Max Alleyne til Burnley - Á láni
Divin Mubama til Southampton - Á láni
John Stones til Inter - Á frjálsri sölu
Joel Ndala til Cercle Brugge - Óuppgefið kaupverð
Sverre Nypan til Lommel - Á láni
Pierce Charles til QPR - Á láni
Mathys Detourbet til Mónakó - Á láni
Bernardo Silva til Real Madrid - Á frjálsri sölu
Jahmai Simpson-Pusey til Köln - Óuppgefið kaupverð

Líklegt byrjunarlið
Mynd: FotMob


Lykilmaður: Erling Haaland
Núna þegar Rodri er farinn, þá tekur norska markamaskínan við keflinu sem mikilvægasti leikmaður Manchester City. Hann er búinn að raða inn mörkum fyrir City síðustu árin en stuðningsmenn liðsins vilja meira. Hann er bara það góður. Hann er í raun vélmenni fyrir framan markið. Var sjóðandi heitur með Norðmönnum á HM í sumar og kemur líklega því af krafti inn í þetta tímabil.

Gaman að fylgjast með: Elliot Anderson
Var stórkostlegur með Nottingham Forest síðasta vetur og svo frábær með enska landsliðinu á HM í sumar. Núna þarf hann að fylgja því eftir og gott betur en það. Verðmiðinn á honum er ekkert grín, hann er næst dýrasti enski fótboltamaður sögunnar á eftir Morgan Rogers sem var keyptur til Chelsea í sumar. Það verður gaman að sjá hvernig Anderson höndlar pressuna að fylgja í fótspor Rodri.
Spáin fyrir enska - 2. sæti

Mynd: EPA

Besta og versta mögulega niðurstaða: Besta niðurstaðan fyrir City er auðvitað bara ef liðið verður Englandsmeistari. Það er vel mögulegt. Versta mögulega niðurstaðan er að þetta verði svona eins og Man Utd eftir Sir Alex Ferguson og Arsenal eftir Arsene Wenger, fótsporin verði bara of stór fyrir Maresca. Ef það gerist og lítið gengur upp, þá er samt sem áður erfitt að sjá City missa af Meistaradeildarsæti.

Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.

Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni.
.

Spáin:
1. ?
2. Manchester City, 242 stig
3. Liverpool, 228 stig
4. Manchester United, 225 stig
5. Chelsea, 222 stig
6. Tottenham, 186 stig
7. Aston Villa, 178 stig
8. Brighton, 166 stig
9. Bournemouth, 135 stig
10. Newcastle, 128 stig
11. Everton, 123 stig
12. Brentford, 111 stig
13. Crystal Palace, 101 stig
14. Leeds United, 95 stig
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig
Spáin fyrir enska - 2. sæti

Mynd: EPA

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.