21.08.26 - 08:30
Elvar Geir Magnússon
Ronaldinho mættur til Ravenna og ætlar að skora

Ronaldinho mættur til Ravenna.

Mynd: EPA

Hann fékk að sjálfsögðu treyju 10.

Mynd: EPA

Ronaldinho mættur til Ravenna.

Mynd: EPA
Ronaldinho er mættur til ítölsku borgarinnar Ravenna en hún er þekktari fyrir strendurnar í nágrenninu en fótbolta. Greint var frá því í júní að hinn 46 ára Ronaldinho væri orðinn leikmaður C-deildarliðs Ravenna.
Félagið blés til 'Ronaldinho dags' þegar brasilíska goðsögnin mætti til borgarinnar með einkaþotu í gær. Hann hitti fyrst fjölmiðla áður en sex þúsund manns hylltu hann við sérstaka athöfn.

TENGT EFNI
Ronaldinho kynntur hjá Ravenna: Við munum gera eitthvað sérstakt!
Ronaldinho hefur ákveðið að taka skóna fram aftur, áratug eftir að hann lagði þá á hilluna.
Hann verður þó ekki með Ravenna í fyrsta deildarleik tímabilsins, gegn Reggio Emilia á mánudag, og algjörlega óvíst hversu mikið hann mun spila með liðinu. Ignazio Cipriani, forseti félagsins, segist eiga sér þann draum að síðasta mark Ronaldinho á ferlinum verði fyrir Ravenna.
„Ég er mjög ánægður með að vera hérna með vinum mínum en bíðum og sjáum hvort það gangi vel með liðinu," sagði Ronaldinho sem var þá spurður að því hvenær stuðningsmenn Ravenna gætu búist við því að sjá hann á vellinum?
„Ég veit það ekki. Það veltur á forsetanum og þjálfaranum. Ég veit ekki. Mér líður allavega nokkuð vel," svaraði hann hlæjandi.
Ronaldinho lék síðast sem atvinnumaður 2015 með Fluminense. Hann spilaði á Ítalíu 2008-11 með AC Milan. Hann vann HM með Brasilíu 2002 og Ballon d'Or gullboltann sem besti leikmaður heims 2005.

Ronaldinho steps out in front of the Ravenna FC fans for the very first time. pic.twitter.com/OWsyOaxmsg
— VERSUS (@vsrsus) August 20, 2026

Hann fékk að sjálfsögðu treyju 10.

Mynd: EPA