21.08.26
Spáin fyrir enska - 1. sæti
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Það er komið að því, enska úrvalsdeildin fer af stað í kvöld. Ef spá Fótbolta.net rætist, þá verður Arsenal Englandsmeistari annað árið í röð.
Arsenal kemur inn í tímabilið sem ríkjandi Englandsmeistari og í allt annarri stöðu en félagið hefur verið í undanfarin ár. Maímánuður á þessu ári var einn eftirminnilegasti mánuður í sögu félagsins síðustu tvo áratugi þar sem Arsenal tryggði sér loksins enska meistaratitilinn eftir 22 ára bið. Jafnvel tap í vítaspyrnukeppni gegn PSG í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gat ekki tekið mikið frá gleðinni.
Meistaratitillinn hefur breytt landslaginu hjá Arsenal. Mikel Arteta er ekki lengur ungi stjórinn sem er að reyna að koma liðinu á toppinn og Arsenal er ekki lengur liðið sem eltir. Nú er Arsenal liðið sem allir vilja vinna. Arteta er orðinn sá stjóri sem þarf að verja titilinn og standa undir allt öðrum væntingum en áður.
Liðið ætti þó að vera vel í stakk búið til að verja titilinn. David Raya hefur reynst frábær í markinu og fyrir framan hann stendur gríðarlega sterkt miðvarðapar í William Saliba og Gabriel. Miðjan er fáránlega sterk og er orðin mun sterkari eftir komu Bruno Guimaraes frá Newcastle. Svo fremst er Christos Tzolis mjög spennandi viðbót.
Markmiðið er kristaltært. Arsenal á að verja enska meistaratitilinn. Það hefur ekki tekist hjá félaginu síðan áður en Arteta fæddist og hvorki George Graham né Arsene Wenger tókst það á sínum tíma. Nú hefur Arteta tækifæri til að gera það sem tvær stærstu goðsagnir félagsins náðu ekki og breyta hátíðarhöldunum í London í árlegan vana.

Mynd: EPA
Stjórinn: Mikel Arteta bað stuðningsmenn Arsenal um að treysta ferlinu í mörg ár og nú er loksins hægt að segja að það hafi skilað sér. Eftir að hafa endað langa bið félagsins eftir enska meistaratitlinum er staða hans á Emirates orðin afar sterk og erfitt að sjá fyrir sér að hann sé á leiðinni annað. Arteta hefur einnig loksins stigið út úr skugga Pep Guardiola. Hann var lengi fyrst og fremst þekktur sem lærisveinn Guardiola, en með meistaratitlinum hefur hann sannað að hann getur byggt upp sigurlið á eigin forsendum.
Leikmannaglugginn: Arsenal landaði einum öflugasta leikmanni ensku úrvalsdeildarinnar og hópurinn virðist sterkari en á síðustu leiktíð. Ezri Konsa virðist líka vera á leiðinni frá Aston Villa og mun styrkja breiddina í vörninni.
Komnir:
Bruno Guimaraes frá Newcastle - 75 milljónir punda
Piero Hincapié frá Bayer Leverkusen - 45 milljónir punda
Christos Tzolis frá Club Brugge - 34 milljónir punda
Illan Meslier frá Leeds - Á frjálsri sölu
Farnir:
Leandro Trossard til Besiktas - 15,3 milljónir punda
Jakub Kiwior til Porto - 14,5 milljónir punda
Christian Nörgaard til Everton - 7 milljónir punda
Karl Hein til Werder Bremen - 2,6 milljónir punda
Takehiro Tomiyasu til Crystal Palace - Á frjálsri sölu

Líklegt byrjunarlið

Lykilmaður: Declan Rice
Declan Rice er orðinn andlit Arsenal og algjör lykilmaður í liði Mikel Arteta. Eftir því sem leikstíll Arteta hefur mikilvægi Rice aukist. Hann er orðinn einn af heildstæðustu miðjumönnum deildarinnar, afar stöðugur og skilar alltaf sínu. Rice er jafnframt gríðarlegur leiðtogi fyrir Arsenal. Hann og Bruno Guimaraes koma til með að mynda fáránlega sterka miðju.
Gaman að fylgjast með: Christos Tzolis
Fyrrum herbergisfélagi Ísaks Bergmanns Jóhannessonar hjá Fortuna Düsseldorf. Tzolis náði aldrei að festa sig í sessi hjá Norwich á sínum tíma og floppaði þar. Síðan þá hefur hins vegar mikið breyst. Hann hefur komið sér aftur á réttan kjöl og skilaði ótrúlegum tölum með Club Brugge. Nú kemur hann til Arsenal sem allt annar leikmaður en sá sem yfirgaf England á sínum tíma og verður spennandi að sjá hvort hann geti látið ljós sitt skína á stærsta sviðinu.

TENGT EFNI
Herbergisfélaginn sem er kominn til Arsenal tveimur árum síðar

Mynd: Arsenal
Besta og versta mögulega niðurstaða: Besta niðurstaðan fyrir Arsenal væri auðvitað bara að verja Englandsmeistaratitilinn og það er bara ansi líklegt. Það eru flestir sem spá þeim titlinum. Versta niðurstaðan, miðað við breidd og gæði hópsins, er líklega bara annað eða þriðja sætið.
Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.
Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni..
Spáin:
1. Arsenal, 249 stig
2. Manchester City, 242 stig
3. Liverpool, 228 stig
4. Manchester United, 225 stig
5. Chelsea, 222 stig
6. Tottenham, 186 stig
7. Aston Villa, 178 stig
8. Brighton, 166 stig
9. Bournemouth, 135 stig
10. Newcastle, 128 stig
11. Everton, 123 stig
12. Brentford, 111 stig
13. Crystal Palace, 101 stig
14. Leeds United, 95 stig
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig