21.08.26 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hürzeler: Það er eina ástæðan fyrir því að Baleba mun ekki spila

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Carlos Baleba, leikmaður Brighton, er skotmark Manchester United á markaðnum.
Fabian Hürzeler, stjóri Brighton, sat fyrir svörum á fréttamannafundi sem haldinn var fyrir leikinn gegn Aston Villa, en sá leikur fer fram á sunnudag og er liður í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

TENGT EFNI
Baleba nálgast Man Utd - Höfnuðu fyrsta tilboði
„Carlos Baleba er leikmaður Brighton. Ég tjái mig aldrei um sögusagnir sem eru í fjölmiðlum. Ég get ekki stýrt þeim - það er mikið skrifað."
„Ég veit hvað er í gangi en ég er með mjög mikilvægan leik fyrir höndum. Á honum er einbeiting mín öll þessa stundina."
„Hann er ekki heill heilsu. Þess vegna verður hann ekki með í leiknum," segir Hürzeler.
Er það eina ástæðan? „Á þessum tímapunkti, já."