Fotbolti.net
21.08.26 - 13:36
Kári Snorrason

Maresca: Hann vildi fara frá fyrsta degi

Savinho er á förum frá Man City.

Savinho er á förum frá Man City.

Canon

Mynd: EPA

Enzo Maresca, stjóri Manchester City, segir Savinho hafa beðið um að fara á fyrsta degi sem Maresca var við stjórnvölinn hjá City.

„Það er alveg ljóst að þegar leikmenn vilja fara, af hvaða ástæðu sem er. Þá er flókið að sannfæra þá um að vera áfram eða skipta um skoðun.“

„Það gerðist með Rodri, það sama er að gerast með Savinho, frá fyrsta degi bað hann mig um að fá að fara. Þannig að nú bíðum við,“
sagði Maresca á blaðamannafundi áðan en Savinho er á leið til Tottenham.
Man City reynir að fá Brassa inn fyrir Brassa
TENGT EFNI

Man City reynir að fá Brassa inn fyrir Brassa

Þá hefur Omar Marmoush sömuleiðis verið orðaður við Tottenham en Maresca segir stöðu hans öðruvísi en með Savinho. Skyldi hann fara þyrfti félagið ná í annan framherja að sögn Maresca.

Hann segir jafnframt að þeir sem hafa farið eða eru á förum frá félaginu hafa það allir sameiginlegt að hafa verið í litlu hlutverki og vildu stærra hlutverk að Rodri utanskyldum.

Man City hefur verið sterklega orðað við Enzo Fernandez, leikmann Chelsea, en Maresca vildi lítið tjá sig um nafna sinn og sagði hann vera leikmann Chelsea.

Manchester City mætir Bournemouth klukkan 13:00 á sunnudaginn í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Liðinu var spáð 2. sæti í spá Fótbolta.net fyrir deildina.
Maresca hefur ekki áhyggjur af stöðunni.

Maresca hefur ekki áhyggjur af stöðunni.

Canon

Mynd: Manchester City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.