20.08.26 - 22:03
Brynjar Ingi Erluson
PSG tilbúið að lækka verðmiðann á Barcola

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Evrópumeistarar Paris Saint-Germain eru nú tilbúnir að lækka verðmiðann á franska vængmanninum Bradley Barcola. Þetta segir Djamel, sem er mjög vel að sér í málefnum félagsins, á X.
Liverpool er í viðræðum við PSG um Barcola en franska félagið fór fram á 170 milljónir evra sem jafngildir um 145 milljónum punda.
Enska félagið er ekki reiðubúið að greiða það verð, en viðræður hafa haldið áfram.
Djamel segir nú að PSG hafi linað kröfurnar og sé nú opið fyrir því að lækka verðmiðann þar sem félagið hefur tryggt sér belgíska vængmanninn Mika Godts frá Ajax.
„Ef ég ætti að súmmera upp stöðuna þá myndi ég segja að PSG hefur sætt sig við hugmyndina um að lækka verðmiðann nú þegar Godts er kominn og Liverpool hefur fengið þau skilaboð og er nú að reyna að lækka verðmiðann enn meira. Þetta er leikur samningaviðræðna, en mér finnst við nálgast það sem ég reiknaði með að myndi gerast fyrir nokkrum dögum,“ sagði Djamel á X.
Hann er að búast við því að Barcola verði seldur til Liverpool og að enska félagið muni bráðlega leggja fram tilboð í leikmanninn.