Fotbolti.net
21.09.19 - 18:31
Ívan Guðjón Baldursson

Þýskaland: Auðvelt fyrir Leipzig á útivelli

Þýskaland: Auðvelt fyrir Leipzig á útivelli
Canon

Mynd: Getty Images

Werder Bremen 0 - 3 RB Leipzig
0-1 Willi Orban ('13)
0-2 Marcel Sabitzer ('35)
0-3 Marcelo Saracchi ('83)
Rautt spjald: Konrad Laimer, Leipzig ('64)
RB Leipzig er komið aftur á sigurbrautina eftir að hafa gert jafntefli við FC Bayern í síðustu umferð.

Í dag heimsótti liðið Werder Bremen og leiddi 0-2 í leikhlé. Willi Orban skoraði með skalla eftir hornspyrnu og svo skoraði Marcel Sabitzer beint úr aukaspyrnu.

Í síðari hálfleik fékk Konrad Laimer seinna gula spjaldið sitt sem er afar umdeilt. Hann snerti knöttinn óvart með hendinni á miðjum velli, ekki margir sem hefðu gefið seinna gula fyrir svo lítið brot.

Það virtist þó ekki há gestunum að vera manni færri. Ef eitthvað þá spiluðu þeir betur og innsiglaði Marcelo Saracchi sigurinn á lokamínútunum, með marki eftir skyndisókn.

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern8+1918
2Dortmund8+818
3Freiburg8+816
4RB Leipzig8+1115
5Werder8+315
6Leverkusen8+213
7Elversberg8013
8Mainz8010
9Augsburg8+39
10Stuttgart8-19
11Hoffenheim8-29
12Paderborn8-39
13Hamburger7-109
14Köln7-38
15Frankfurt7-78
16Schalke 048-56
17Union Berlin7-126
18Gladbach8-114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.