Fotbolti.net
21.09.26 - 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Erfitt að þjálfa bróður sinn - „Vonandi förum við í mismunandi átt"

Stígur Diljan

Stígur Diljan

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Baldvin Þórðarson, aðstoðarþjálfari Víkings, ræddi við Fótbolta.net í dag. Aron Baldvin fékk rautt spjald þegar liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á KR á laugardaginn.

Fékk rautt í Vesturbænum - „Algjör óþarfi og ég þarf að bæta þetta"
TENGT EFNI

Fékk rautt í Vesturbænum - „Algjör óþarfi og ég þarf að bæta þetta"

Hann var spurður út í Stíg Diljan Þórðarson en hann skoraði sigurmarkið á laugardaginn. Stígur er bróðir Arons. Hvernig er að sjá hann stíga upp á svona augnablikum?

„Það er gríðarlega gaman. Ég fattaði það ekki í mómentinu, þá vorum við bara að skora. Svo seinna um kvöldið þá var það auka krydd. Bæði í fyrra og árið áður, akkúrat þegar hann var að komast í gírinn, þá meiddist hann. Honum hefur vantað að finna rytma, hefur alltaf verið að nálgast þetta form sem hann er að komast í núna. Hann á talsvert meira inni og vonandi nær hann að haldast heill til lengri tíma, þá er þetta stórhættulegur leikmaður."

Hvernig er að þjálfa bróður sinn?

„Það er alveg erfitt en ég hef vanist því töluvert. Ég næ að gleyma því þegar ég er í búbblunni; á æfingum og í leikjum. Þá er hann bara leikmaður, maður gleymir því að hann sé bróðir minn í augnablikinu. Svo þegar ég hitti hann hjá mömmu og pabba þá er sambandið allt öðruvísi. Ég mæli ekkert með þessu og ég vona að þetta verði ekki lengi, þetta er alveg pínu óþægilegt, ég viðurkenni það. Maður þarf að leggja meira á sig að vera faglegur og passa sig að setja hann undir sama hatt. Maður fellur stundum í þá gryfju að passa sig of mikið. Sem betur fer hefur þetta vanist og er orðið venjulegt. Svo er ég ekki aðalþjálfari sem tekur lokaákvörðun. En þetta er skrítið og vonandi förum við í mismunandi átt svo maður geti stutt hann meira sem hlutlaus aðili."
Aron Baldvin

Aron Baldvin

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.