Fotbolti.net
21.10.06 - 14:16
Magnús Már Einarsson

Milan Stefán Jankovic þjálfar Grindavíkinga (Staðfest)

Milan Stefán Jankovic þjálfar Grindavíkinga (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Milan Stefán Jankovic hefur verið ráðinn þjálfari Grindvíkinga en þetta var tilkynnt á blaðamannafundi sem haldinn var þar nú skömmu eftir hádegið.
Milan Stefán er öllum hnútum kunnugur í Grindavík en hann lék á sínum tíma með liðinu og hefur einnig þjálfað það. Síðast stýrði hann Grindvíkingum í síðustu tveimur leikjum Landsbankadeildarinnar í sumar ásamt Magna Fannberg.

Fyrir tveimur árum þjálfaði Milan Stefán lið Grindavíkur einn en í sumar þjálfaði hann annan flokk félagsins.

Okkar menn voru á blaðamannafundinum og mun viðtal við Milan Stefán birtast á síðunni síðar í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.