Fotbolti.net
21.11.20 - 14:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Byrjunarlið Aston Villa og Brighton: Sama lið og í 3-0 sigrinum á Arsenal

Watkins skoraði tvö í síðasta leik gegn Arsenal.

Watkins skoraði tvö í síðasta leik gegn Arsenal.

Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa, spútniklið ensku úrvalsdeildarinnar til þessa, tekur á móti Brighton í áhugverðum leik í ensku úrvalsdeildinni klukkan 15:00. Byrjunarliðin eru klár.
Villa er í sjötta sæti en getur með sigri í dag mögulega farið á topp deildarinnar. Brighton hefur spilað vel en situr samt í 16. sæti með sex stig.

Aston Villa vann 3-0 sigur á Arsenal í síðasta leik fyrir landsleikjahlé og byrjar auðvitað með sama lið og þar í dag.

Lewis Dunk kemur til baka úr leikbanni hjá Brighton og Solly March er klár í slaginn eftir meiðsli.

Byrjunarlið Aston Villa: Martinez, Cash, Konsa, Mings, Targett, Luiz, McGinn, Trezeguet, Barkley, Grealish, Watkins.
(Varamenn: Steer, Taylor, Hourihane, Traore, Nakamba, El Ghazi, Elmohamady)

Byrjunarlið Brighton: Ryan, Lamptey, Dunk, White, Webster, March, Gross, Bissouma, Lallana, Welbeck, Maupay.
(Varamenn: Steele, Connolly, Jahanbakhsh, Alzate, Burn, Veltman, Molumby)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea12-116
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Nott. Forest12-512
15Coventry11-812
16Fulham11-211
17Ipswich Town11-711
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.