21.12.05 - 18:18
Magnús Már Einarsson
Páll Einars og Hermann í Fylki (Staðfest)

Páll Einarsson ásamt Leifi Garðarssyni þjálfara Fylkis og Jóni Sveinssyni aðstoðarþjálfara liðsins.

Mynd: Fylkir

Miðjumaðurinn Páll Einarsson hefur gert tveggja ára samning við Fylkismenn en þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem liðið sendi frá sér nú rétt í þessu.
Páll sem er 33 ára gamall hefur leikið allan sinn feril með Þrótti en eins og flestum er kunnugt um hætti hann hjá félaginu á dögunum eftir deilur við Atla Eðvaldsson þjálfara liðsins.
Páll sem getur einnig leikið í vörninni hefur skorað níu mörk í 53 leikjum í efstu deild en hann skoraði fimm mörk í átján leikjum með Þrótti í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar.
Fylkismenn hafa einnig krækt í Hermann Aðalgeirsson leikmann Völsungs eins og við greindum frá á dögunum. Hermann sem lék æfingaleik með Fylki í síðustu viku mun skrifa undir þriggja ára samning á milli jóla og nýárs en þessi sóknarmaður sem getur einnig leikið á miðjunni skoraði fimm mörk í sautján leikjum í fyrstu deildinni í sumar.