Fotbolti.net
21.12.06 - 08:40
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Fernando Gago til Real Madrid (Staðfest)

Gago í baráttunni við John Obi Mikel

Gago í baráttunni við John Obi Mikel

Canon

Mynd: Getty Images

Boca Juniors hafa greint frá því að þeir hafa selt hinn tuttugu ára gamla Fernando Gago til spænska stórveldisins Real Madrid fyrir 27 milljónir dollara (tæpar fjórtán milljónir punda).
Argentíska félagið greindi frá þessu í fréttatilkynningu í gærkvöldi og bindir það enda á viðræður milli félaganna sem hófust fyrir nokkrum mánuðum, þegar Real fóru fyrst að spyrjast fyrir Gago sem er oftar en ekki líkt við landa sinn Fernando Redondo.

Boca sögðu að Real ætlaði að borga 9 milljónir dollara strax, aðrar níu milljónir á einu ári og síðustu níu milljónirnar á tveimur árum. Gago eru þriðju kaup Real á stuttum tíma en þeir fengu nýlega til sín Argentínumanninn Gonzalo Higuain frá River Plate og Brasilíumanninn Marcelo frá Fluminese.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.