21.12.06 - 13:14
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Tavano til Roma á láni (Staðfest)

Tavano í leik með Empoli gegn Roma á sínum tíma

Mynd: Getty Images

Tavano í leik með Empoli gegn Roma á sínum tíma

Mynd: Getty Images
Ítalski sóknarmaðurinn Francesco Tavano er á leiðinni til AS Roma á láni frá spænska félaginu Valencia út tímabilið, en þessu greindi forseti Valencia frá í dag.
,,Við höfum komist að samkomulagi. Leikmaðurinn mun snúa aftur til Valencia 28. desember og mun ganga til liðs við Roma þann 4. janúar," sagði Juan Soler forseti Valencia við spænska blaðið Marca í dag.
Tavano hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Valencia síðan hann kom til þeirra í ágúst og hefur ekki skorað í þeim sex leikjum sem hann hefur spilað fyrir Quique Sanchez Flores og hans menn. Hann skoraði hinsvegar 37 mörk á tveimur tímabilum fyrir Empoli áður en hann kom til Spánar.

Heimild: AP