22.01.05 - 06:19
Ben Thatcher til Fulham (Staðfest)

Thatcher fagnar marki

Thatcher fagnar marki

Fulham hafa fest kaup á Walesverjanum Ben Thatcher fyrir 500 þúsund pund og skrifaði hann undir þriggja og hálfs árs samning. Manchester City samþykktu að leyfa Ben Thatcher að fara frá félaginu vegna persónulegra ástæðna. Í tvígang hefur verið brotist inn á heimili hans og eiginkona hans vill flytja aftur til London og Kevin Keegan stjóri City varð að ósk þeirra.
Keegan óskaði hinsvegar eftir því að hann yrði áfram hjá félaginu þar til hann fynfi nýjan mann í stöðuna hans. En Stephen Jordan hefur nú náð sér af ökklameiðslum sem hrjáðu hann og því leyfði Keegan honum að fara strax.
Keegan sagði þetta um Thatcher í síðustu viku: "Við dýrkum hann hérna hjá liðinu en sumir hlutir eru mikilvægari en fótbolti. Sumir segja kannski að ég sé ekki nógu harður en ég vil ekki að Ben sé hérna án fjölskyldu sinnar. Hann hefur haft mikil áhrif hérna hjá félaginu. Hann er frábær náungi og við munum sakna hans."