22.01.07 - 15:36
Andri Fannar Stefánsson
Milan Baros til Lyon (Staðfest) Carew á leið til Aston Villa

Baros er farinn til Lyon.

Mynd: Getty Images

Baros er farinn til Lyon.

Mynd: Getty Images
Frönsku meistararnir Lyon hafa náð að landa tékkneska framherjanum Milan Baros frá Aston Villa og að öllum líkindum mun norski framherjinn John Carew fara til Villa í skiptum en hann mun fara til Englands í dag til viðræðna við félagið.
Gerard Houllier þjálfari Lyon staðfesti á föstudag að hann hefði áhuga á Baros en hann keypti tékkneska framherjann til Liverpool á sínum tíma og hafði áður reynt að kaupa hann til Lyon.
Baros sem er 25 ára gamall var markakóngur EM 2004 með Tékkum en hann hefur einungis skorað eitt mark í sautján deildarleikjum á leiktíðinni fyrir Aston Villa.
Lyon á í miklum meiðslavandræðum og því hefur félagið ákveðið að fá Baros en Carew sem hefur verið eftirsóttur af fjöldamörgum liðum í Evrópu virðist vera að koma í ensku deildina eftir að hafa áður spilað á Spáni, Ítalíu, Frakklandi og í Tyrklandi.