Fotbolti.net
22.01.07 - 16:45
Magnús Már Einarsson

Hjálmar Þórarinsson í Fram (Staðfest)

Hjálmar (til vinstri) er genginn til liðs við Framara.

Hjálmar (til vinstri) er genginn til liðs við Framara.

Canon

Mynd: Guðmundur Karl

Fram hefur fengið framherjann Hjálmar Þórarinsson að láni frá skoska félaginu Hearts í eitt ár og geta Framarar keypt leikmanninn að þeim tíma loknum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Framarar sendu frá sér nú rétt í þessu en gengið var frá lánssamningnum um helgina.
,,Fram væntir mikils af Hjálmari sem er aðeins tvítugur að aldri og bíður hann hjartanlega velkominn til félagsins," segir í tilkynningunni frá Fram.

Hjálmar er uppalinn hjá Þrótti en hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með félaginu í fyrstu deild árið 2002, þá sextán ára gamall.

Alls skoraði Hjálmar 9 mörk í 44 deildarleikjum fyrir Þrótt áður en að hann gekk til liðs við Hearts haustið 2004. Hann lék fjóra leiki með Hearts tímabilið 2004/2005 en eftir að litháískir fjárfestar keyptu félagið komu margir nýjir leikmenn til þess og Hjálmar fékk færri tækifæri.

Hann fór til Raith Rovers á lánssamningi í september síðastliðnum og stóð sig vel með þeim í haust. Hjálmar hefur leikið fimm U-21 árs landsleiki og þá á hann samtals að baki 27 leiki með U-19 og U-17 ára landsliðinu en í þeim hefur hann skorað 16 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.