22.01.07 - 17:39
Stephen Warnock kominn til Blackburn (Staðfest)

Stephen Warnock.

Mynd: Getty Images

Stephen Warnock.

Mynd: Getty Images
Blackburn hefur gengið frá kaupunum á vinstri bakverðinum Stephen Warnock frá Liverpool. Warnock er 25 ára gamall og var kominn neðarlega í goggunarröðina í stöðunni hjá ensku bikarmeisturunum á eftir John Arne Riise og Fabio Aurelio. Auk þess keypti Liverpool ungan Argentínumann, Emanuel Insua í janúar, en hann spilar í vinstri bakverði.
"Hann hefur reynslu úr Meistaradeildinni auk þess að hafa spilað nokkuð marga leiki í úrvalsdeildinni. Hann er örvfættur og það mun gefa okkur meira jafnvægi á vinstri kantinum sem við höfðu ekki með Lucas Neill," sagði Mark Hughes, stjóri Blackburn, við opinbera heimasíðu félagsins.
"Mér líkar vel við viðhorf hans til leiksins. Hann vill lenda í návígjum og hann passar vel inn í minn leikstíl. Liverpool var hrifið af hæfileikum hans og vildu helst ekki sleppa svona góðum ungum enskum leikmanni að fara frá félaginu."
"Það er líklega ástæða þess að við gengum ekki frá þessu fyrr," sagði Mark Hughes.

Heimild: BBC