Fotbolti.net
22.01.07 - 17:49

Lucas Neill skrifar undir hjá West Ham (Staðfest)

Lucas Neill.

Lucas Neill.

Canon

Mynd: Getty Images

West Ham hefur staðfest kaup sín á Lucas Neill en hann skrifaði undir samning við félagið nú síðdegis. Talið er að kaupverðið á þessum fyrrum fyrirliða Blackburn sé 1,5 milljón punda en hann mun líklega þéna 60.000 pund á viku, tvöfalt meira en það sem Liverpool bauð honum, en þeir rauðklæddu voru einnig á höttunum eftir varnarmanninum sterka.
Neill gekk frá samningi sínum við Eggert Magnússon og félaga hans um helgina ásamt því að gangast undir læknisskoðun. Hann þvertekur fyrir það að hann hafi valið peninga og fallbaráttu fyrir titilbaráttuna hjá Liverpool.

,,Þetta snerist ekki um peninga, það kom ekki málinu við," sagði Neill. ,,Þetta snerist um að vera eftirsóttur. West Ham voru að berja niður dyrnar til að ná mér en Liverpool gáfu mér tilboð sem ég varð að taka eða að hafna. Þeir komu ekki einu sinni á eftir mér fyrr en 15 dögum eftir að félagaskiptaglugginn opnaði."

,,Þetta var verulega erfið ákvörðun en ég veit að hún var sú rétta. West Ham voru tilbúnir að gera allt til að fá mig en Liverpool gáfu mér þá tilfinningu að ég fengi ekki einu sinni að spila ef ég færi þangað. Ég studdi þá sem strákur og ég þekki fólk sem mun skammast í mér fyrir að velja þá ekki,"
sagði Neill um helgina eins og við höfum áður greint frá.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.