22.01.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Zarate til Birmingham (Staðfest)

Zarate fagnar sigurmarki sínu fyrir Argentínu á HM U20 ára landsliða.

Mynd: Getty Images

Birmingham City hefur fengið argentínska framherjann Mauro Zarate á láni frá Al Saad í Katar. Zarate kemur til Birmingham á láni út tímabilið með möguleika á kaupum í sumar.
Zarate skoraði sigurmark U20 ára landsliðs Argentínu á HM á síðasta ári og Alex McLeish stjóri Birmingham er spenntur fyrir honum.
,,Hann er ungur og kraftmikill með argentínsku boltatæknina og útsjónarsemina. Ef hann getur komið og látið hluti gerast á þriðja helmingi vallarins þá mun hann geta unnið leiki fyrir okkur," sagði McLeish við BBC WM.
Zarate er þriðji leikmaðurinn sem Birmingham fær á innan við viku en áður hafði liðið krækt í David Murphy og James McFadden.
Birmingham hefur einnig verið orðað við Georgios Samaras framherja Manchester City en McLeish vill lítið gefa upp um leikmannamál.
,,Við munum ekki koma með neinar yfirlýsingar þar til við höfum eitthvað að segja. Við erum að reyna að fá fleiri leikmenn en ég vil ekki segja hverja," sagði McLeish.

Heimild: BBC