Fotbolti.net
22.01.08 - 17:25
Hörður Snævar Jónsson

Leon Andreasen til Fulham (Staðfest)

Andreasen til vinstri.

Andreasen til vinstri.

Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hafa gengið frá kaupum á Leon Andreasen frá Werder Bremen. Andreasen er 24 ára gamall miðjumaður og er frá Danmörku.
Andreasen skrifaði undir þriggja ára samning við Fulham. ,,Ég er ánægður með að félögin komust að samkomulagi og ég gat farið til Fulham," sagði Andreasen.

,,Ég naut tímans hjá Werder Bremen en nú er ég spenntur fyrir þeirri áksorun sem ég er að takast við. Ég er fullur tilhlökkunar að spila fyrir Fylham og berjast í ensku úrvaldsdeildinni."

Roy Hodgson stjóri Fulham var ánægður með að fá Andreasen. ,,Ég er ánægður með að hafa fengið Andreasen til Fulham."

,,Hann hefur alla þá hæfileika sem þarf til að berjast gegn þeim bestu og hefur viljann til að gera vel í öllum leikjum,"
sagði Hodgson.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.