Karl Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern Munchen, hefur staðfest áhuga liðsins á varnarmanninum Dayot Upamecano.
Upamecano mun yfirgefa Leipzig eftir tímabilið en hann er fáanlegur fyrir 40 milljónir punda samkvæmt samningi.
Rummenigge staðfestir að Bayern sé að horfa til leikmannsins sem er 22 ára gamall franskur miðvörður.
„Við munum að sjálfsögðu taka á þessu, ekki bara með þennan leikmann heldur í öllum stöðum sem við þurfum að styrkja," sagði Rummenigge.
„Það er of snemmt að nefna samkomulag. Hann er enn leikmaður Leipzig og verður það út tímabilið hið minnsta."
„Það er þó vitað að hann er með þessa klásúlu í samningnum."
Athugasemdir