Það fóru fram þrír leikir í Fótbolta.net mótinu í kvöld en undirbúningstímabilið er farið af stað á fullu hér heima.
Það var boðið upp á nóg af mörkum í kvöld en Njarðvík vann til að mynda Víking Ólafsvík sannfærandi 5-1 í Reykjaneshöllinni í B-riðli.
Hlynur Magnússon og Bergþór Ingi Smárason gerðu báðir tvö mörk fyrir Njarðvík sem leikur undir stjórn Bjarna Jóhannssonar og Hólmars Rúnarssonar.
Afturelding tapaði fyrr í kvöld gegn Haukum 4-2 í Mosfellsbæ. Afturelding vann Vestra 2-1 í fyrstu umferð en þurfti að sætta sig við tap í annarri umferð. Leikið var í B-riðli.
Í C-riðli áttust við Árborg og Kári en þar hafði Árborg betur með tveimur mörkum gegn engu.
Hér má sjá úrslitin og markaskorara kvöldsins.
Njarðvík 5 - 1 Víkingur Ó.
1-0 Hlynur Magnússon
2-0 Bergþór Ingi Smárason
2-1 Markaskorara vantar
3-1 Bergþór Ingi Smárason
4-1 Tómas Óskarsson
5-1 Hlynur Magnússon
Afturelding 2 - 4 Haukar
0-1 Aron Freyr Róbertsson
0-2 Þórður Jón Jóhannesson
1-2 Valgeir Árni Svansson
1-3 Markaskorara vantar
2-3 Aron Daði Ásbjörnsson
2-4 Aron Skúli Brynjarsson
Árborg 2 - 0 Kári
1-0 Guðmundur Sveinsson
2-0 Arilíus Óskarsson
Athugasemdir