Fotbolti.net
22.01.23 - 12:15
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu mörkin er Breiðablik vann ÍA - Olsen og Eyþór Aron á skotskónum

Sjáðu mörkin er Breiðablik vann ÍA - Olsen og Eyþór Aron á skotskónum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik vann ÍA, 4-1, í æfingaleik á Kópavogsvelli í gær en færeyski framherjinn Klæmint Olsen kom sér á blað.
Stefán Ingi Sigurðarson, sem var á láni hjá HK á síðustu leiktíð, gerði fyrsta mark Blika áður en Gísli Laxdal Unnarsson jafnaði fyrir Skagamenn.

Eyþór Aron Wöhler skoraði gegn sínum gömlu félögum og kom Blikum yfir en hann kom til félagsins frá ÍA eftir tímabilið.

Olsen gerði síðan þriðja markið áður en hinn 17 ára gamli Tumi Fannar Guðmundsson gerði síðasta mark leiksins fyrir Blika. Hægt er að sjá öll mörkin hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.