22.02.22 - 20:17
Brynjar Ingi Erluson
Davíð opnaði markareikninginn með laglegu marki

Davíð Snær Jóhannsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Snær Jóhannsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflvíkingurinn, Davíð Snær Jóhannsson, opnaði markareikning sinn með unglinga- og varaliði Lecce í 4-3 tapi liðsins gegn Hellas Verona í gær.
Lecce keypti Davíð frá Keflavík í janúar og gerði hann eins og hálfs árs samning við félagið með möguleika á að framlengja um þrjú ár.
Hann skoraði svo fyrsta mark sitt fyrir unglinga- og varaliðið í tapinu í gær en markið var af dýrari gerðinni.
Davíð fékk boltann fyrir utan teig og skoraði með góðu skoti yfir markvörð Verona og í netið en markið má sjá hér fyrir neðan.
