Diogo Dalot hefur verið hjá Manchester United í átta ár og spilað með nokkrum mjög öflugum leikmönnum. Portúgalski bakvörðurinn var gestur hjá Rio Ferdinand í vikunni og ræddi ýmislegt.
Hann valdi m.a. fimm manna úrvalslið leikmanna sem hann hefur spilað með á ferlinum.
Pepe, Paul Pogba, Bruno Fernandes, Cristiano Ronaldo og Anthony Martial eru í úrvalsliðinu. Það vekur athygli að franski sóknarmaðurinn Martial sé í liðinu. Martial var keyptur frá Mónakó á samtals 45 milljónir punda árið 2015. Í kaupsamningnum var Ballon d'Or ákvæði; upphæð sem United hefði þurft að greiða ef Martial hefði verið valinn besti leikmaður heims.
Martial skoraði 90 mörk í 317 leikjum með United í öllum keppnum. Hann hefur spilað með AEK og Monterrey eftir að hann yfirgaf Untied sumarið 2024.
Hann byrjaði vel hjá United, skoraði 17 mörk á sínu fyrsta tímabili og hans besta tímabil var 2019-20 þegar hann skoraði 23 mörk. Eftir það fór að fjara undan hjá Martial.

„Martial? Ég bjóst ekki við því, ég veit að hann er mjög hæfileikur, en af hverju hann?" spurði Ferdinand.
„Ég segi hann út af því sem hann gat gert í leikjum og á æfingum. Ég spilaði mjög oft á móti honum (á æfingu) og hann var mjög erfiður viðureignar. Hann var einn af þeim sem skorti stöðugleika, stundum aftengdi hann sig frá öllu. En ef hann hefði viljað þá hefði hann getað orðið besti leikmaður í heimi. Auðveldlega," sagði Dalot.
„Það voru hlutir á æfingu sem hefði þurft að stöðva æfinguna út af, gæðamikil augnablik þegar maður hefði viljað segja: „Allt í lagi, förum inn." Og ég upplifði nokkrum sinnum svona, líka þegar Juan Mata sýndi gæði sín," bætti Dalot við.
Athugasemdir