Fotbolti.net
22.02.26 - 10:27
Brynjar Ingi Erluson

Reyna að sannfæra Southgate um að taka við - Nunez aftur til Englands?

Darwin Nunez er orðaður við Tottenham og Newcastle

Darwin Nunez er orðaður við Tottenham og Newcastle

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Darwin Nunez gæti snúið aftur í ensku úrvalsdeildina, Liverpool undirbýr tilboð í Anthony Gordon og þá vill Crystal Palace ráða Gareth Southgate út leiktíðina. Heill hellingur af heitu slúðri í Powerade-slúðurpakka dagsins!
Tottenham og Newcastle vilja ólm fá úrúgvæska framherjann Darwin Nunez (26), sem var áður á mála hjá Liverpool, aftur í ensku úrvalsdeildina, en hann spilar í dag með Al-Hilal í Sádi-Arabíu. (Teamtalk)

Tottenham og Aston Villa eru meðal félaga sem eru að fylgjast með Pavel Sulc (25), miðjumanni Lyon og tékkneska landsliðsins. (Mail)

Joe Gomez (28), varnarmaður Liverpool, mun líklega yfirgefa félagið í sumar, en AC Milan og Bayern München eru afar áhugasöm um leikmanninn. (CaughtOffside)

Roma og Juventus eru búin að skrá sig í baráttuna um argentínska miðvörðinn Marcos Senesi (28), sem er á mála hjá Bournemouth, en samningur hans rennur út eftir tímabilið. (Corriere dello Sport)

Real Madrid er í bílstjórasætinu um Nico Schlotterbeck (26), miðvörð Borussia Dortmund. Barcelona hefur einnig áhuga á þýska landsliðsmanninum. (AS)

Newcastle hefur áhuga á Hugo Bueno (23), varnarmanni Wolves, en spænski leikmaðurinn gæti verið falur fyrir rétta upphæð í sumarglugganum. (Football Insider)

Liverpool er að undirbúa 83 milljóna punda tilboð í Anthony Gordon (24), vængmann Newcastle United í sumar, það er að segja ef Mohamed Salah (33) yfirgefur félagið eftir tímabilið. (Fichajes)

Everton ætlar að leggja fram 30 milljóna punda tilboð í Liam Delap (23), framherja Chelsea, í sumar. (Teamtalk)

Crystal Palace er að reyna sannfæra Gareth Southgate um að taka við af Oliver Glasner til bráðabirgða út þetta tímabil. (Football Insider)
Anthony Gordon til Liverpool?

Anthony Gordon til Liverpool?

Canon

Mynd: EPA

Tekur Southgate við Palace út tímabilið?

Tekur Southgate við Palace út tímabilið?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.