Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 22. mars 2023 21:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ratcliffe og Sjeik Jassim með nýtt tilboð í Manchester United
Mynd: EPA

Erlendir fjölmiðlar greina frá því að breski auðkýfingurinn Sir Jim Ratcliffe og Katarinn Sjeik Jassim hafi gert nýtt tilboð í Manchester United en aðilarnir fengu frest þangað til í kvöld að gera tilboð.


Samkvæmt heimildum Mirror er um að ræða stærsta tilboð sem gert hefur verið en miðillinn nefnir enga tölu.

Glazer fjölskyldan mun nú fara yfir tilboðin en Ratcliffe og Jassim gera sér grein fyrir því að fjölskyldan mun taka sér góðan tíma til að fara yfir málin.

Báðir aðilar eru bjartsýnir á að tilboðin séu nógu heillandi fyrir Manchester United.


Athugasemdir
banner
banner