Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 22. mars 2026 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
„Gætu tapað 10-0 í París"
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Liverpool tapaði gegn Brighton í gær og var frammistaða fráfarandi Englandsmeistaranna ekki góð.

Lokatölur leiksins urðu 2-1 og gátu lærlingar Arne Slot prísað sig sæla að hafa ekki tapað stærra miðað við yfirburði Brighton í seinni hálfleiknum.

„Þetta er skref afturábak fyrir Liverpool. Maður veit bara aldrei við hverju á að búast þegar þetta lið mætir á völlinn. Þeir skilja ekki hvað vandamálið er og þetta virðist vera frekar ruglingslegt hjá þeim," sagði fyrrum úrvalsdeildarmarkmaðurinn Rob Green í útsendingu BBC.

Liverpool stóð sig gríðarlega vel í miðri viku með 4-0 sigri gegn Galatasaray en síðustu þrír úrvalsdeildarleikir liðsins hafa verið arfaslakir. Liverpool er aðeins búið að ná í eitt stig í síðustu lelikjum gegn Wolves, Tottenham og Brighton og er liðið að dragast afturúr í baráttunni um meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð.

Það er kærkomið landsleikjahlé framundan og sagði Arne Slot í viðtali eftir tap Liverpool að hann vonaðist til að leikmenn hans yrðu ekki látnir spila 180 mínútur í glugganum.

Liverpool heimsækir Manchester City í stórleik í 8-liða úrslitum enska bikarsins helgina eftir landsleikjahléð og flýgur svo til Parísar til að spila við ríkjandi Evrópumeistara PSG í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Stephen Warnock, fyrrum bakvörður Liverpool, var einnig í settinu og segist vera smeykur leikina gegn PSG.

„Ef þeir fara til Parísar og spila eins og þeir spiluðu í dag þá gætu þeir tapað 10-0. Liverpool voru það lélegir í dag, þeir voru heppnir að tapa bara 2-1 útaf því að Brighton nýtti ekki færin sín," sagði Warnock.

„Ég get lofað ykkur að PSG mun nýta færin sín. Þetta er mikið áhyggjuefni fyrir Liverpool."

PSG og Liverpool mættust í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fyrra og höfðu Frakklandsmeistararnir þá betur eftir æsispennandi seinni leik á Anfield.

   21.03.2026 16:55
Liverpool með fleiri töp en síðustu tvö tímabil samanlagt

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 31 15 10 6 56 43 +13 55
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 31 14 7 10 50 42 +8 49
6 Chelsea 31 13 9 9 53 38 +15 48
7 Brentford 31 13 7 11 46 42 +4 46
8 Everton 31 13 7 11 37 35 +2 46
9 Fulham 31 13 5 13 43 44 -1 44
10 Brighton 31 11 10 10 41 37 +4 43
11 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
12 Bournemouth 31 9 15 7 46 48 -2 42
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 31 7 12 12 37 48 -11 33
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 31 4 8 19 33 61 -28 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir
banner
banner