Njarðvík stefnir upp úr Lengjudeildinni í sumar og var að bæta öflugum varnarleikmanni við hópinn sinn.
Jóhann Ægir Arnarsson kemur til Njarðvíkur á lánssamningi frá FH sem gildir út tímabilið.
Jóhann Ægir er fæddur 2002 og getur leikið bæði í vörn og á miðju.
Hann er með 54 leiki að baki í Bestu deildinni og kom við sögu í 14 deildarleikjum með FH í fyrra.
Jóhann er uppalinn hjá FH og hefur alla tíð spilað fyrir félagið.
Hann er mættur til Tenerife þar sem Njarðvík leggur lokahönd á undirbúninginn fyrir tímabilið sem er framundan í Lengjudeildinni.
Athugasemdir
