Fotbolti.net
22.04.05 - 14:21
Hafliði Breiðfjörð

Baldur samdi við Keflavík til þriggja ára (Staðfest)

Baldur samdi við Keflavík til þriggja ára (Staðfest)
Canon

Mynd: skarpur.is

Baldur Sigurðsson skrifaði á miðvikudagskvöld undir þriggja ára samning við bikarmeistara Keflavíkur. Baldur kemur frá Völsungi á Húsavík en hann er tvítugur miðvallarleikmaður og var mjög eftirsóttur áður en hann valdi að fara til Keflavíkur.
Þannig höfðu Valsmenn einnig verið í sambandi við hann auk þess sem FH og KR sýndu áhuga.

Eftir að Baldur skrifaði undir samninginn spilaði hann æfingaleik með Keflavík gegn Víkingum og skoraði annað mark Keflavíkur í leiknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.