John Andrews: Leikmennirnir áttu þetta skilið

John Andrews, þjálfari Víkings

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

John Andrews, þjálfari Víkings

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er ánægður, leikmennirnir áttu þetta skilið“ segir John Andrews, þjálfari Víkings, eftir að liðið tryggði sér efsta sætið í B-deild Lengjubikarsins eftir 6-0 sigur gegn Fram.
„Það er alltaf gaman að vinna bikar. Þetta tók smá tíma en við erum mjög ánægð. Við erum búin að vera að byggja liðið hægt og rólega upp undanfarið þrjú og hálft ár og þetta er góð áminning að það sé enn smá spölur í land.“
„Lengjudeildin verður frábær í sumar, þjálfararnir og leikmennirnir sem við munum mæta eru frábærir þannig að við þurfum að hitta á góðan dag í hverjum einasta leik.“
„Ef að við förum upp um deild þá held ég að við verðum tilbúin fyrir þá áskorun, við erum svo stolt af leikmönnunum okkar en þú veist ekki hvað gerist í september. En við gerum alltaf okkar besta og það ætti að vera nóg til þess að vera í þeirri baráttu að minnsta kosti."
Viðtalið í heild sinni er hægt að horfa á hér fyrir ofan.


