22.05.08 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Luke Steele til Barnsley (Staðfest)

Luke Steele.

Mynd: Getty Images

Luke Steele.

Mynd: Getty Images
Barnsley hefur gengið frá kaupum á Luke Steele markverði WBA en hann kemur til félagsins án greiðslu.
Steele sem er 23 ára gamall gerði eins árs samning við félagið eftir að hafa verið á láni hjá þeim í þrjá mánuði þar sem hann sannaði sig með frábærri frammistöðu.
Steele var áður hjá Manchester United. Hann var fenginn til Barnsley til að leysa stöðu Heinz Muller sem meiddist í febrúar.
Frábær frammistaða hans í bikarsigrum gegn Liverpool og Chelsea hjálpaði til við að koma Barnsley í undanúrslitaleik enska bikarsins, FA Cup, þar sem liðið beið lægri hlut gegn Cardiff.
,,Við erum hæstánægðir með að hafa náð í Luke endanlega," sagði Simon Davey stjóri Barnsley í gær. ,,Núna erum við með tvo hágæða markmenn í Luke og Heinz Muller, sem munu berjast um aðalmarkvarðarstöðuna."

Heimild: BBC