Fotbolti.net
22.05.08 - 08:49
Hafliði Breiðfjörð

Mark Schwarzer samdi við Fulham (Staðfest)

Mark Schwarzer samdi við Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ástralski markvörðurinn Mark Schwarzer sagði í dag að hann hafi skrifað undir tveggja ára samning vð enska úrvalsdeildarfélagið Fulham en þar með lýkur 11 ára dvö hans hjá Middlesbrough.
Schwarzer tilkynnti þetta þegar hann kom til Sydney frá Englandi fyrir vináttulandsleik Ástralíu gegn Ghana sem fer fram á föstudag.

,,Ég tók eiginlega ákvörðun fyrir nokkru síðan, þess efnis að það gæti verið mikill möguleiki á að ég yfirgæfi Middlesbrough," sagði Schwarzer. ,,Ég held bara að tímasetningin hafi verið rétt."

Schwarzer er 35 ára gamall. Samningur hans við Middlesbrough stóð út næsta mánuð. Hann hefur spilað 467 leiki fyrir félagið síðan hann kom til þeirra árið 1997. Hann sagði að Mike Kelly markmannsþjálfari Fulham hafi átt mikinn þát í að hann valdi félagið sem rétt slapp við fall á tímabilinu sem var að ljúka.

,,Markvarðarþjálfari þeirra var fyrsti markvarðarþjálfarinn minn á Englandi þegar ég kom til Middlesbrough," sagði hann. ,,Hann var í sambandi við mig og hafði mikinn áhuga á að fé mig til félagsins."

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.