Chelsea verðmetur Jackson á 100 milljónir punda - Rashford efstur á óskalista Barcelona - Sancho til Juventus?
Gústi Gylfa: Eins og Þorgrímur Þráins sagði, varnarleikur vinnur leiki
„Örugglega það besta sem ég hef séð frá honum síðan ég kom"
Rúnar: Ætlum ekki að fara grenja yfir því að hafa tapað
Partí á Ísafirði í kvöld - „Vonandi sletta þeir aðeins úr klaufunum"
Alli Jói: Pabbi hringdi í mig og skammaði mig eftir leik
Fyrsta tap ÍR: „Helvíti gróft ef að eitt tap í tólf leikjum sitji þungt í mönnum"
Hemmi fékk góða afmælisgjöf: „Hún gat ekki verið betri"
Reynir Freyr: Gefur okkur mikið að fá Jón Daða
Gunnar Guðmunds: Við erum búnir að fá okkur alltof mörg mörk úr föstum leikatriðum
Árni Freyr: Andleysi leikmanna í hámarki
Jakob Gunnar spilaði sinn síðasta leik fyrir Þróttara: Vildi spila meira
Ingi Rafn: Fyrri hálfleikurinn skóp þennan sigur
Mark tekið af Keflavík vegna rangstöðu: „Bara óskiljanlegt"
Haraldur Hróðmars: Lífsnauðsynlegur sigur
Venni: Það gaf okkur blóð á tennurnar
Sandra María: Gáfum líkama og sál en það skilaði engu
Hlín kom frábær inn - Svekkt með hlutverkið sitt
Sveindís: Hann kemur samt þegar ekkert er undir
Glódís svekkt: Leyfðum henni að gera nákvæmlega það sem hún vill
Guðrún: Fæ gæsahúð í hvert skipti
   sun 22. maí 2022 20:05
Sverrir Örn Einarsson
Matti Vill: Við erum bara ekki betri en þetta
Matthías Vilhjálmsson
Matthías Vilhjálmsson
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
„Bara lélegt. Við vorum ekki nógu góðir í báðum boxum okkar eigin vítateig og í þeim færum sem við fengum svo þetta er mjög súrt.“ Sagði Matthías Vilhjálmsson fyrirliði FH eftir 2-1 tap Hafnfirðinga gegn Keflavík á HS-Orkuvellinum nú fyrr í kvöld.

Lestu um leikinn: Keflavík 2 -  1 FH

Sóknarleikur FH var stirður að miklu leyti í leiknum og ákvarðanataka á síðasta þriðjungi ekki upp á sitt besta. Þeir fengu þó sín færi sem ekki nýttust en meðal annars varði Sindri Kristinn Ólafsson markvörður Keflavíkur tvisvar sinnum maður á móti manni.

„Við fengum svo sannarlega færi til þess að fá eitthvað út úr þessum leik en það er lítið annað við því að segja en að við erum bara ekki betri en þetta á þessum tímapunkti og við verðum bara að spýta í lófanna og gera betur.“

Að sjö umferðum loknum er FH í sjöunda sæti deildarinnar með sjö stig sem verður að teljast langt frá þeim væntingum sem gert var til liðsins fyrir mót.

„Byrjunin hefur ekki verið nægjanlega góð. Fjögur töp í sjö leikjum, það segir sig sjálft að það er ekki nægjanlega gott. Nú eigum við leik gegn Kára í bikarnum á miðvikudaginn og þurfum að klára það. Svo eigum við erfiðan heimaleik á móti KR og þurfum að gjöra svo vel að vinna þann leik,“

Sagði Matthías en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner