Fotbolti.net
22.05.22 - 19:58
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn: Granada fallið eftir ótrúlega lokaumferð

Luis Suarez (ekki þessi frá Úrúgvæ) var í byrjunarliðinu en tókst ekki að skora.

Luis Suarez (ekki þessi frá Úrúgvæ) var í byrjunarliðinu en tókst ekki að skora.

Canon

Mynd: EPA

Lokaumferð spænska boltans er að ljúka og er fallbaráttan ráðin.

Það var gríðarleg dramatík í fallbaráttunni þar sem óvænt niðurstaða fékkst - Granada er fallið úr efstu deild.

Mallorca og Cadiz björguðu sér frá falli með sigrum í dag en Granada gerði markalaust jafntefli við Espanyol þrátt fyrir ótrúlegan sóknarþunga á lokamínútunum. Þar komust heimamenn þrisvar sinnum nálægt því að gera sigurmark í uppbótartíma en inn vildi boltinn ekki.

Carlos Bacca og félagar í Granada eru því fallnir. Eina leiðin fyrir þá til að falla var að bæði Mallorca og Cadiz myndu vinna á útivelli í lokaumferðinni - sem gerðist.

Mallorca vann frábæran útisigur á Osasuna til að bjarga sér á meðan Cadiz lagði Alaves á útivelli með marki frá Choco Lozano.

Mallorca og Cadiz enda með 39 stig á meðan Mallorca fellur með 38.

Granada 0 - 0 Espanyol

Alaves 0 - 1 Cadiz
0-1 Choco Lozano ('76)

Osasuna 0 - 2 Mallorca
0-1 Angel ('47)
0-2 Clement Grenier ('83)

Elche 3 - 1 Getafe

Það bjuggust ekki margir við að Mallorca tækist að bjarga sér.

Það bjuggust ekki margir við að Mallorca tækist að bjarga sér.

Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla11-217
7Athletic10+415
8Deportivo11+114
9Villarreal11012
10Celta11012
11Alaves11-212
12Vallecano10-512
13Getafe11-812
14Espanyol11-111
15Osasuna11-1111
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.